Félagsfundurinn var þokkalega vel sóttur af félagsmönnum. Í upphafi fundar var heimasíðan formlega opnuð og voru fundarmenn ánægðir með framtakið. Því miður komst fulltrúi Samiðnar ekki vegna veðurs, til að flytja erindi sitt á fundinum, en fundarmenn bættu sér þann missi á andlegu fóðri með ljómandi kaffiveitingum. Nokkrar umræður urðu um hin ýmsustu mál félagsins og lauk ágætum fundi upp úr kl. 22.