Skip to main content

Þann 26. maí 2026, fór aðalfundur félagsins fyrir árið 2025, fram með hefðbundnu sniði. Engar breytingar urðu á skipan stjórnar, trúnaðarráðs né skoðunarmanna, enda traustir menn við stjórn.

Félagsgjald verður óbreytt 0,85% af öllum launum, en hámarks félagsgjald á ársgrundvelli verður 90.000 kr. á árinu 2027. Hámarkið er 80.000 kr. árið 2026.

Skýrslu stjórnar flutti Björgvin J. Sveinsson formaður félagsins.  Starfsárið var á svipuðum nótum og undanfarin ár.

Fundurinn samþykkti hækkun á styrkjum úr sjúkrasjóði vegna gleraugnakaupa og viðtalsmeðferða. Einnig var samþykkt að orlofssjóður styrki félagsmenn árlega að hámarki 20.000 kr. vegna gistikostnaðar á tjaldsvæðum.

Í fundarlok þakkaði Björgvin formaður, stjórnarmönnum, trúnaðarráðsmönnum, starfsmanni og félögum öllum fyrir samstarfið á árinu.