Desemberuppbótin á almennum markaði, að meðtöldu orlofi, er 50.500 kr. og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember n.k. miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Starfsmenn sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi þann 1.desember eiga rétt á desemberuppbót. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót líkt og aðrir.
Sá tími sem starfsmaður er í fæðinarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar.
Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót.
Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
> Samband íslenskra sveitafélaga kr. 78.200