Breiðfylkingin hefur náð samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga.
Samkomulagið felur í sér að umsamin launahækkun á samningstímanum skilar sér að fullu til launafólks, en gildistími kjarasamninganna styttist um einn mánuð.
Jafnframt hafa stjórnvöld boðað ýmsar aðgerðir sem snúa meðal annars að réttindum launafólks, barnabótum, húsnæðisöryggi og gjaldskrárhækkunum. Ríki og sveitarfélög eru hvött til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og stefnt er að því að skapa skilyrði fyrir lægri verðbólgu og vexti.
Meðal þeirra réttarbóta sem boðaðar hafa verið eru aðgerðir gegn launaþjófnaði, breytingar varðandi lágmarkskjör, aukin vernd leigjenda og frekari aðgerðir á vinnumarkaði.
Nánari upplýsingar um samkomulagið og einstakar aðgerðir má finna í frétt Samiðnar.
Heimild: Fréttin er unnin upp úr umfjöllun á vef Samiðnar.
Lesa fréttina „Viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga“ á vef Samiðnar