Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra býður upp á meistaranám iðnaðarmanna, almennan hluta, á næsta skólaári ef næg þátttaka fæst. Gert er ráð fyrir að nám fari fram síðdegis og kennt verði í gegnum fjarfundarbúnað utan Skagafjarðar. Umsóknarfrestur er til 1. maí nk. Skráning og upplýsingar eru í síma 455 8000.
Iðnsveinafélagið hvetur félagsmenn sína til að sækja sér aukin réttindi og menntun. Þetta nám er styrkt af félaginu.