Um þessar mundir er Leikfélag Hofsóss að sýna leikverkið PÓKÓK eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Stjórn Iðnsveinafélagsins hefur gert samkomulag við leikfélagið á þann veg að félagmönnum býðst að kaupa einn miða á kr. 1.500 á leikritið og fá annan miða á kr. 2.000. Hvetur stjórnin félagsmenn til að nýta sér þetta fína tilboð. Við kaup verður félagsmaður að taka fram að hann sé félagsmaður í Iðnsveinafélagi Skagafjarðar. Miðasala er í síma 893-0220 milli kl. 13:00 og 18:00 sýningardagana sem eru:
4. sýning | Laugardag | 27. mars | kl. 20:30 |
5. sýning | Fimmtudag | 1. apríl | kl. 17:00 |
6. sýning | Fimmtudag | 1. apríl | kl. 23:00 |
7. sýning | Mánudag | 5. apríl | kl. 15:00 |