Skip to main content

Orlofsuppbót á almennum vinnumarkaði er 58.000 kr. á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2024. Orlofsuppbót er greidd þann 1. júní ár hvert miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu (01.05. 2023– 30.04. 2024), öllum þeim starfsmönnum sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl 2024 eða eru í starfi 1. maí 2024. Ef starfsmaður hættir störfum fyrir lok orlofsárs er uppbótin greidd hlutfallslega m.v. upphæðina 1. maí á undan enda gildir sú fjárhæð út orlofsárið.

Húsasmiðir og pípulagningamenn í ákvæðisvinnu fá greidda orlofsuppbót líkt og aðrir.
Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla orlofsuppbót.

Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.