Orlofshúsið er leigt út til skemmri tíma en viku tímabilið frá 1. september til 1. júní ár hvert. Tímabilið 1. júní til 1. september er húsið aðeins leigt í vikuleigu, þ.e. frá hádegi föstudags til hádegis næsta föstudags. Þennan tíma ganga félagsmenn fyrir öðrum.
Nánari upplýsingar um búnað orlofshúss o.fl. eru hér.
Verðin í töflunni gilda einungis fyrir félagsmenn.
Leigutími | Helgarleiga | Verð pr. viku | |
Orlofshús Vhl. | Föstud. (hád.)-föstud. (hád.) * | 15.000 kr. | 30.000 kr. |
** Leiguverð orlofshúss til annara en félagsmanna er 40.000 kr. fyrir vikuna, en 20.000 kr. fyrir helgi.
Athugið að innan 10 daga frá staðfestri úthlutun verður að greiða upphæð leigunar inn á bankareikning annars verður litið svo á að fallið sé frá umsókninni.
Vinsamlegast greiðið inn á tékkareikning 0310-26-002063, kt. 690975-0849. Kvittun óskast send (t.d. í tölvupósti (orlhus@ifskag.is) ef greitt er i heimabanka).
Þegar umsóknarfrestur félaga er liðinn og úthlutun hefur farið fram, þá gildir sú regla með lausar vikur að sá fær sem fyrstur sækir um.